Pistill frá formanni mótanefndar
Kæru kylfingar
Senn líður að Meistaramóti GSS. Í huga margra kylfinga eru meistaramót klúbbana hápunkturinn á golfsumrinu, og er það svo í mínu tilviki. Hér gefst hinum almenna félagsmanni tækifæri á að prófa golf eins og atvinnumennirnir þekkja það. Fjórir dagar af alvöru keppnisgolfi þar sem hvert högg telur og spennustigið getur orðið hátt. Margir eru þeirrar skoðunar að höggleikur sé hið eina sanna golf. Því til stuðnings nefna menn að margir kylfingar eru góðir í holukeppni en fatast fljótt flugið þegar kemur að höggleik. Standist maður hinsvegar pressuna sem fylgir höggleik, þá er maður að öllum líkindum líka góður í holukeppni. Þegar telja þarf hvert högg fer leikurinn á annað plan. Höggleikur er því frábært tækifæri til að láta reyna á andlegu hliðina og einstakt tækifæri fyrir okkur til að bæta okkur sem kylfinga og jafnvel lækka forgjöf. Ekki má heldur gleyma því að Meistaramótið er kjörið tækifæri fyrir byrjendur til að skerpa á þeim þáttum leiksins er lúta að reglum, hegðun á golfvellinum og spilamennsku almennt. En að lokum er þetta samt alltaf bara spurning um að hafa gaman og spila golf í góðum félagsskap.
Í ár verður keppt í 6 flokkum í karlaflokki og í 3 í kvennaflokki.
Flokkaskiptingar verða eftirfarandi:
Karlar | |
Forgjöf | Flokkur |
<8,4 | Meistaraflokkur |
8,5-12,5 | 1. flokkur |
12,6-18,0 | 2. flokkur |
18,1-24,5 | 3. flokkur |
24,6-35,9 | 4. flokkur |
36 | Byrjendaflokkur |
Konur | |
Forgjöf | Flokkur |
<23 | Meistaraflokkur |
23,1-35,9 | 1. flokkur |
36 | Byrjendaflokkur |
Mótanefnd áskilur sér rétt til að sameina flokka sé fjöldi þáttakanda í ákveðnum flokkum ekki nægur.
Keppendum er heimilt að spila upp fyrir sig um einn flokk en að sama skapi getur keppandi aldrei fært sig niður um flokk og leikið með kylfingum með hærri forgjöf.
Mótið hefst miðvikudaginn 13. júlí og lýkur laugardaginn 16. júlí og stendur því yfir í 4 daga. Byrjendaflokkar hefja leik þann 14. og spila þeir því í 3 daga.
Ekki má svo gleyma að við munum slútta meistaramótinu með skemmtilegri veislu og verðlaunaafhendingu laugardagskvöldið 16. júlí. Hægt verður að skrá sig í matinn í skála og kosta herlegheitin aðeins 2000 kr. Þáttaka í veislunni stendur öllum klúbbmeðlimum og fjölskyldum þeirra til boða og er ekki bara bundin við keppendur.
Það er von okkar í mótanefnd að við munum sjá sem flest ykkar á vellinum með okkur í næstu viku.
Fyrir hönd mótanefndar
Bjarni Jónasson