Meistaramóti barna og unglinga lokið
Meistaramót barna og unglinga GSS var haldið dagana 13. og 14. júlí s.l. Keppt var í 6 flokkum og voru keppendur samtals 12. Það gustaði svo sannarlega um keppendur þessa daga og fyrri daginn rigndi líka hressilega en þau létu það ekki á sig fá og stóðu sig með miklum ágætum. Það voru því 40 þáttakendur í báðum Meistaramótum GSS þetta árið.
Meðfylgjandi er mynd af hluta keppenda við verðlaunaafhendinguna.
Allar myndir frá verðlaunaafhendingunni má sjá á facebook síðunni Golfmyndir GSS
Úrslitin urðu þessi:
1 flokkur stelpur 2 x 18 holur – rauðir teigar | |
1. Marianna Ulriksen | 213 högg |
2. Telma Ösp Einarsdóttir | 227 högg |
3. Hildur Heba Einarsdóttir | 242 högg |
1 flokkur strákar 2 x 18 holur – gulir teigar | |
1. Hákon Ingi Rafnsson | 170 högg |
2 flokkur stelpur 2 x 18 holur – rauðir teigar | |
1. Anna Karen Hjartardóttir | 254 högg |
2 flokkur strákar 3 x 9 holur – rauðir teigar | |
1. Bogi Sigurbjörnsson | 200 högg |
2. Reynir Bjarkan B. Róbertsson | 225 högg |
3 flokkur stelpur 2 x 9 holur – gullteigar | |
1. Rebekka Helena B. Róbertsdóttir | 141 högg |
2. María Rut Gunnlaugsdóttir | 161 högg |
3 flokkur strákar 2 x 9 holur – gullteigar | |
1. Davíð Jónsson | 114 högg |
2. Brynjar Már Guðmundsson | 126 högg |
3. Gísli Kristjánsson | 138 högg |