Aðalfundur GSS

Ágætu félagar,

Við viljum minna á aðalfund GSS mánudaginn 6.jan. nk. vegna ársins 2013

Einnig hvetjum við sem flesta til að gefa kost á sér í nefndir og/eða bjóða sig fram í stjórn klúbbsins. Samkvæmt lögum GSS þá skal kjósa á næsta aðalfundi formann, varaformann, ritara og formann barna- og unglingaráðs og er öllum frjálst að bjóða sig fram í þessi störf, ljóst er að einhverjir þeirra sem í dag gegna þessum embættum gefa ekki kost á sér til endurkjörs.  Hvetjum við félagsmenn til að bjóða sig fram til stjórnar- og nefndastarfa, til þess þarf ekki að hafa verið í golfi um lengri tíma heldur geta allir tekið þátt í starfi klúbbsins – vanir/óvanir, ungir/aldnir, konur eða karlar.

Stjórnin

Categories: Óflokkað

Jólakveðja frá Mark Irving

Mark Irving sendi okkur kveðju sem hér fer á eftir.

Greetings to all of you at Golfklúbbur Saudarkroks  I trust you all are well and looking forward to Christmas and the new year.

All the very best and thanks for 2013
Kindest regards from
Mark Irving

Categories: Óflokkað

Jólamót í golfherminum

Jólamót í golfherminum 27. – 29 desember  

Leikið verður á Castle pines v2 vellinum
Þessi glæsilegi völlur er hannaður af Jack Nicklaus.
Lengd af bláum teigum 6253 m  Lengd af rauðum teigum 4945 m

Forsendur ásamt nánari upplýsingum auglýst í herminum.
Leikmenn:    Konur og öldungar (70+) leika af rauðum teigum
Karlar leika af bláum teigum (mism. á rauðum og bláum teigum er 1308 m)
Keppnisfyrirkomulag: Höggleikur með og án forgjafar. Ein verðlaun, ostakarfa,  veitt í hvorum flokki. Styrktaraðili mótsins er Hlíðarkaup.

Við útreikning á forgjöf leikmanns er miðað við grunnforgjöf hans og hækkar aukastafur ,5 og hærra  leikforgjöf upp í næstu heilu tölu en ,4 og lægra lækkar leikforgjöf niður í næstu heilu tölu.

Gert er ráð fyrir að þriggja manna holl leiki þennan völl á innan við þremur tímum.
Keppnisgjald: Kr. 1.000.- (ekkert gat á gatakort)
Skráning í mótið fer fram hjá Guðmundi Ragnarssyni  í síma 893-5601 og geta keppendur valið leiktíma miðað við það sem hér kemur á eftir:

Föstudaginn 27. desember geta 5 holl spilað,  kl. 10, 13, 16, 19 og 22.
Laugardaginn 28. desember geta 5 holl spilað, kl. 9, 12, 15, 18 og 21.
Sunnudaginn 29. desember geta 3 holl spilað, kl. 10, 13 og 16.
Skráningu lýkur kl. 18:00 fimmtudaginn 26. desember n.k. (annar í jólum)

Óski fleiri eftir að taka þátt í mótinu en rými er fyrir samkvæmt ofangreindu áskilur golfhermisstjórnin sér rétt til að bæta við rástímum sunnudaginn 29. desember n.k.

Keppendur skulu sjálfir færa skorkort, skráð af skjánum, og fá þeir það í hendur áður en leikur hefst. Að leik loknum kvitta leikmenn undir.

Minnum einnig á að hægt er að kaupa tíma í herminn á sérstöku tilboði, sem gildir fram að jólum.

Categories: Óflokkað