GSS starfið

Golfskálinn er opinn að jafnaði kl. 9 – 17. Lengur á þriðjudögum og miðvikudögum vegna móta. Í skálanum er veitingasala og sala á golfvörum: boltum, tíum og hönskum. Félagsmenn GSS geta fengið aðstoð með Golfbox appið þar. Símanúmerið í golfskálanum er 453 5075.

Starfi GSS er skipt upp í nokkur svið sem er stýrt af nefndum, fjölmennastar eru: mótanefnd, vallarnefnd, nýliðanefnd og barna- og unglinganefnd. Upplýsingar um skipan í nefndir eru hér: http://www.gss.is/um-gss/stjornnefndir/

Categories: Óflokkað

Sjálfboðaliðar óskast

Það er alltaf þörf fyrir sjálfboðaliða. Stjórnar- og nefndastarf er unnið í sjálfboðavinnu og ýmislegt annað, svo sem liðsstjórn.
Það er alltaf þörf fyrir sjálfboðaliða hjá GSS. Hér eru nokkur dæmi um verkefni þar sem félagar geta rétt hjálparhönd.

  • Viltu aðstoða á vellinum eða mála kylfugeymslur og skúra? Hafðu þá samband við Guðmund Ágúst formann vallarnefndar.
  • Viltu hjálpa til í Nýprentsmótinu? Hafðu þá samband við Sylvíu formann barna- og unglinganefndar.
  • Viltu hjálpa til við þjálfun nýliða eða vera mentor? Hafðu þá samband við Dagbjörtu formann nýliðanefndar.
  • Viltu hjálpa til við árshátíðina, t.d. að raða upp og skreyta? Hafðu þá samband við Gunnar Sandholt, sem stýrir undirbúningi árshátíðar.
  • Viltu setja upp skemmtikvöld eða skipuleggja annan viðburð? Hafðu þá samband við Kristján Bjarna formann.
  • Viltu hjálpa til við Kvennamót? Mættu þá þegar kallið kemur 🙂
  • Viltu taka sjoppuvakt? Hafðu þá samband við Karenu verslunarstjóra golfskálans.

Í haust endum við starfið með bráðskemmtilegu sjálfboðaliðamóti sem verður Texas Scramble líkt og á Tiltektarmóti og hentar öllum getustigum. Sjálfboðaliðar sumarsins hafa rétt til þátttöku í mótinu 🙂

Gerum þetta saman!

Categories: Óflokkað

Tiltekt og tiltektarmót

Tiltekt fór fram 30. maí og tiltektarmót í kjölfarið. Dagurinn heppnaðist vel og endaði með bráðskemmtilegu Texas Scramble þar sem þrír voru í liði. Flott verðlaun og fjöldi útdráttarverðlauna.

Categories: Óflokkað