Konur GSS áfram í efstu deild

Kvennsveit GSS 2020

Íslandsmót golfklúbba 2020, 1. deild kvenna var haldin á Urriðavelli (Golfklúbburinn Oddur) og Leirdalsvelli (Golfklúbbur Kópavogs- og Garðabæjar) 23.-25. júlí.  Kvennasveit GSS varð í 6. sæti í efstu deild og keppir í þeirri deild að ári liðnu. 
Sveit GSS skipuðu: Anna Karen Hjartardóttir, Árný Lilja Árnadóttir, Dagbjört Rós Hermundsdóttir, Hildur Heba Einarsdóttir,  Rebekka Helena Róbertsdóttir, Sigríður Elín Þórðardóttir, Telma Ösp Einarsdóttir og Una Karen Guðmundsdóttir. 

Í riðlakeppninni tapaði GSS fyrir GR (Reykjavík) 5/0 og GK (Keilir) 4,5/0,5, en unnu GO (Oddur) í spennandi viðureign með 3 vinningum gegn 2, þar sem úrslit réðust á lokaholunum. Eftir riðlakeppnina lék liðið um 5.-8. sæti. Þar vann GSS lið GV (golfkl. Vestmanneyja) í öðrum spennandi leik, en 3 leikir enduðu á 18. holu, úrslit 4/1 fyrir GSS. Lokaleikur mótsins var gegn GS (Suðurnes), sem endaði með jafntefli en þar sem GS hafði fleiri stig úr öðrum viðureignum var lokastaðan 6. sæti 1. deildar og heldur kvennasveit GSS sæti sínu í efstu deild að ári. Íslandsmeistarar golfklúbba 2020 eru GR eftir úrslitaleik við GK.

Nú var Íslandsmótið í kvennaflokki sérstakt að því leyti að fremstu atvinnukylfingar landsins tóku flestir þátt enda liggur mótahald út í hinum stóra heimi niðri af alkunnum ástæðum. Einnig eru í mörgum af stærri klúbbunum margar stúlkur sem stunda golf samhliða námi í Bandaríkjunum og eru því nokkurs konar hálfatvinnumenn í íþróttinni.

Í því félagi sem vann titilinn í kvennaflokki, Golfklúbbi Reykjavíkur, eru um 3200 félagsmenn Sú sveit var leidd af Ólafíu Þórunni Jónsdóttur atvinnukylfingi. Í Golfklúbbnum Keili eru um 1300 félagsmenn og þar á meðal Íslandsmeistarinn Guðrún Brá Björgvinsdóttir. Í Golfklúbbi Garðabæjar og Kópavogs eru um 2000 félagar en þær urðu í þriðja sæti og Mosfellingar voru í fjórða sæti en þar eru um 1200 félagsmenn. Sú sveit sem varð jöfn Skagfirðingum var sveit  Suðurnesjamanna með um 700 félaga, Golfklúbburinn Oddur í Garðabæ með um 1600 félagsmenn og Vestmannaeyingar sem státa af ríflega 400 félögum urðu fyrir neðan GSS. Til samanburðar eru nú ríflega 200 félagar í GSS.

Í sveitakeppni í golfi keppa hverju sinni 6 einstaklingar og verður því að vera mikill breidd í þeim liðum sem keppa hverju sinni. GSS hefur á að skipa mjög ungu liði með tvo reynslubolta en 6 ungar stelpur. Í liðinu eru einungis konur sem búsettar eru á Sauðárkróki en sum önnur liðanna voru styrkt með brottfluttum kylfingum og er árangurinn því eftirtektarverðari. Það verður spennandi að fylgjast með kylfingum í GSS á komandi árum og árangurinn ber starfi klúbbsins gott vitni.

Categories: Óflokkað

Karlasveit GSS tryggði áframhaldandi veru sína í 2. deild.

Íslandsmót golfklúbba í 2.deild karla var haldið hjá Golfklúbbnum Leyni á Akranesi 24.-26.júlí og var karlasveit GSS meðal keppenda. Sveitina skipuðu þeir Arnar Geir Hjartarson, Atli Freyr Rafnsson, Hákon Ingi Rafnsson, Hlynur Freyr Einarsson, Ingvi Þór Óskarsson og Jóhann Örn Bjarkason. Liðsstjóri var Hjörtur Geirmundsson.

Riðlakeppnin byrjaði með leik á móti GOS (Selfoss) á föstudeginum. Atli Freyr og Hlynur Freyr spiluðu fjórmenning, en tvímenning, Arnar Geir, Hákon Ingi , Ingvi Þór  og Jóhann Örn. Þessi uppstilling hélst hjá okkur í öllum leikjum. Þessum leik tapaði GSS með 4 vinningum gegn 1. Arnar Geir sigraði sinn leik.  Eftir hádegið á föstudag var síðan leikið við NK ( Nesklúbbur ) og sá leikur var mun jafnari en fyrsti leikurinn en tapaðist að endingu með 3.5 vinningum gegn 1.5. Jóhann Örn sigraði sinn leik og Arnar Geir gerði jafntefli.

Á laugardaginn var byrjað á að keppa við GO ( Golfkl.Oddur ). Þar varð einnig um hörkuviðureign að ræða þar sem Oddur hafði að lokum betur með 3 vinningur gegn 2.  Hákon Ingi og Ingvi Þór unnu sínar viðureignir. Eftir þetta var ljóst að GSS myndi fara í riðil þar sem leikið yrði um sæti 5-8 og myndi ekki taka með sér neinn sigur þangað.

Eftir hádegi var síðan leikið við GKB ( Golfkl. Kiðjaberg ) Þar var góður gír á mannskapnum og GSS sigraði með 3 vinningum gegn 2. Atli Freyr og Hlynur Freyr sigruðu í fjórmenningi og Ingvi Þór og Jóhann Örn sigruðu í sínum leikjum. Það var því ljóst eftir þetta að við myndum mæta GH (Húsavík )  í hreinum úrslitaleik um hvort liðið myndi tryggja sér áframhaldandi veru í 2.deild. Það var mjög fljótlega ljóst að sveit GSS ætlaði að selja sig dýrt í þessum leik og mjög snemma þá sigraði Hákon Ingi í sínum leik. Fljótlega fylgdi Ingvi Þór í kjölfarið og sigraði sinn leik. Arnar Geir kláraði síðan sinn leik skömmu síðar. Fjórmenningur Atla Freys og Hlyns Freys endaði með jafntefli á 18.holu og Jóhann Örn tapaði sínum leik á 18.holu þar lokapútt beggja keppenda réði úrslitum. Þetta þýddi 3.5 vinningar gegn 1.5 vinningi og ljóst var að vera GSS í 2.deild var þar með tryggð.

Úrslit í öðrum leikjum urðu þess svo valdandi að við enduðum í 6.sæti. GOS sigraði hins vegar í 2.deild eftir úrslitaleik við NK.

Þetta er flottur árangur þar sem keppt var við mjög sterkar sveitir og karlasveit GSS hefur undanfarin ár verið í 3.deild.

Öll nánari úrslit í hverjum leik fyrir sig má finna á www.golf.is

Categories: Afreksstarf