Arnar Geir Hjartarson (295 högg) og Árný Lilja Árnadóttir (324 högg) urðu klúbbmeistarar á meistaramóti GSS sem fór fram að Hlíðarenda dagana 10. – 13. júlí. Þátttakendur voru 38 talsins og nutu þeir sín vel í góðu veðri á vellinum sem er í toppstandi. Spilaðir voru 4 hringir, nema í byrjendaflokki og öldungaflokki þar sem spilaðir voru 3 hringir. Að loknu móti var verðlaunaafhending og lokahóf í skála þar sem Kaffi Krókur sá um veitingarnar. Úrstlit mótsins má sjá inn á golf.is
Opna kvennamót GSS fór fram á Hlíðarendavelli laugardaginn 29. júní. Þátttakendur voru 55 konur úr ýmsum golfklúbbum. Sigurvegari var Ingibjörg Ólöf Guðjónsdóttir (GSS) með 43 punkta. Í öðru sæti var Anna Karen Hjartardóttir (GSS) með 43 punkta og í þriðja sæti var Hildur Heba Einarsdóttir (GSS) með 41 punkt. Engin fór tómhent heim, þökk sé frábærum stuðningi fjölmargra fyrirtækja. Það er gaman að geta tekið á móti svona flottum hópi, það er góð kynning á Hlíðarendavelli og úrvals kynning fyrir Skagafjörð.
Opna Nýprent, fyrsta mótið í Titleist-Footjoy Norðurlandsmótaröðinni fór fram á Hlíðarendavelli 23. júní. Keppendur voru 57 víða af Norðurlandi. Nýprent meistarar að þessu sinni urðu þau Sara Sigurbjörnsdóttir GFB (88 högg) og Lárus Ingi Antonsson GA (76 högg) en þann titil hljóta þeir kylfingar sem leika 18 holur á fæstum höggum. Nándarverðlaun voru á 6/15 braut og vippkeppni fyrir alla keppendur að leik loknum.
Sigurvegarar í flokkakeppni voru eftirfarandi:
18-25 ára drengir:
Arnar Geir hjartarson GSS, 77 högg
Hákon Ingi Rafnsson GSS, 90 högg
Gunnar Aðalgeir Arason GA, 91 högg
18-25 ára stúlkur:
Telma Ösp Einarsdóttir GSS, 98 högg
15-17 ára drengir:
Lárus Ingi Antonsson GA, 76 högg
Mikael Máni Sigurðsson GA, 78 högg
Patrik Róbertsson GA, 89 högg
15-17 ára stúlkur:
Sara Sigurbjörnsdóttir GFB, 88 högg
Hildur Heba Einarsdóttir GSS, 94 högg
Guðrún María Aðalsteinsdóttir GA, 108 högg
14 ára og yngri drengir:
Veigar Heiðarsson GA, 82 högg
Snævar Bjarki Davíðsson GA, 90 högg
Alexander Franz Þórðarson GSS, 101 högg
14 ára og yngri stúlkur:
Anna Karen Hjartardóttir GSS, 95 högg
Kara Líf Antonsdóttir GA, 98 högg
Una Karen Guðmundsdóttir GSS, 107 högg
12 ára og yngri drengir:
Axel Arnarsson GSS, 59 högg
Unnar Marinó Friðriksson GHD, 60 högg
Bjartmar Dagur Þórðarson GSS, 65 högg
12 ára og yngri stúlkur:
Auður Bergrún Snorradóttir GA, 47 högg
Birna Rut Snorradóttir GA, 50 högg
Bryndís Eva Ágústsdóttir GA, 56 högg
Einnig var keppt í byrjendaflokki þar sem allir fengu verðlaun en ekki var raðað í sæti.
Næsta mót í Titleist-Footjoy Norðurlandsmótaröðinni verður haldið á Dalvík sunnudaginn 7. júlí.