Úrslit í Hlíðarkaupsmótinu 2016
Hlíðarkaupsmótið fór fram 23. júlí í logni, rigningu og þoku. Þrjátíu keppendur mættu til leiks og var ræst út af öllum teigum klukkan 10:00. Leikfyrirkomulag var punktakeppni með forgjöf og voru veitt verðlaun fyrir fimm efstu sætin en einnig voru nándarverðlaun á 3/12 og 6/15 holu.
Helstu úrslit voru:
1. Andri Þór Árnason GSS – 36 punktar
2. Haraldur Friðriksson GSS – 33 punktar
3. Sigríður Elín Þórðardóttir GSS – 32 punktar
4. Stefán Bjarni Gunnlaugsson GA – 31 punkt
5. Ásmundur Baldvinsson GSS – 31 punkt.
Rafn Ingi Rafnsson var næstur holu á 3/12 braut og Andri Þór Árnason var næstur holu á 6/15 braut.
GSS þakkar Ásgeiri í Hlíðarkaup fyrir stuðninginn.