Author: Stjórn GSS
Golfklúbbur Skagafjarðar 50 ára (grein í Feyki 29.1.2020)
Golfklúbbur Skagafjarðar hefur starfað frá árinu 1970 og verður því 50 ára á árinu 2020. GSS gegnir mikilvægu hlutverki í Sveitarfélaginu Skagafirði. Í fyrsta lagi fer fram öflugt barna- og unglingastarf í klúbbnum, í öðru lagi hentar golf sem áhugamál, félagsskapur og heilsubót fyrir fólk á öllum aldri og síðast en ekki síst er golf hluti af ferðamennsku og golfarar heimsækja Skagafjörð gagngert til þess að spila golf. Um mitt sumar 2019 voru 167 félagar skráðir í GSS og hafði fjölgað um 13 frá árinu áður.
Barna- og unglingastarf
Barna og unglingastarf er blómlegt og fer vaxandi. Sumaræfingar eru á virkum dögum júní – ágúst og á veturnar eru inniæfingar. Þjálfarar okkar eru reyndir golfarar í GSS og einnig fáum við PGA kennara í heimsókn. Langtímamarkmið í þjálfun barna og unglinga er að skapa áhuga á golfíþróttinni og íþróttum almennt, sem endist ævilangt. Mikil áhersla er lögð á gott félagsstarf og í tilefni afmælisárs verður farið í æfingaferð til Danmerkur í sumar.
Nýliðun og mótahald
GSS er góður félagsskapur sem er öllum opinn. Árlega eru haldin nýliðanámskeið á vorin. GSS hefur það að markmiði að gera inngöngu í GSS áhugaverða, með kynningu, námskeiðum og nýliðamótum. Nýliðanefndin og þjálfarar á nýliðanámskeiði hjálpa nýjum félögum við skrefið frá því að vera byrjandi yfir í það að spila reglulega á Hlíðarendavelli.
Mótahald skipar stóran sess í starfi klúbbsins. Árlega eru haldin a.m.k. 6 opin mót og yfir 20 innanfélagsmót. Auk þess starfar GSS með UMFÍ/UMSS að undirbúningi og framkvæmd landsmóta.
Völlur og starfsmenn
Hlíðarendavöllur fær einróma lof þeirra sem hann sækja. Völlurinn að Hlíðarenda er á um 29 hektara svæði, sem jafngildir yfir 60 knattspyrnuvöllum. Hann er því með stærri íþróttamannvirkjum Skagafjarðar að flatarmáli. Staðsetning vallarins er góð, í göngufæri frá íbúðabyggð og tjaldstæðum bæjarins sem hefur marga augljósa kosti. Það krefst vinnu að viðhalda vellinum og bæta. Vallarnefnd hefur lagt fram metnaðarfulla áætlun um endurbætur á vellinum árin 2020 – 2024. Áætlunina er að finna í handbók klúbbsins á heimasíðu GSS, www.gss.is. Vallarstjórinn hefur ásamt sumarstarfsmönnum unnið afrek við að halda vellinum í góðu ástandi og tækjum gangandi. Endurbætur á vellinum krefjast mikillar vinnu. Fjórir sumarstarfsmenn starfa á vellinum og einn starfsmaður í golfskálanum. Tveir starfsmanna vallarsins sinna einnig kennslu barna og unglinga. Starfsmenn vallarins sinna einnig slætti á íþróttasvæði Sauðárkróks og á opnum svæðum á Sauðárkróki.
Golfskálinn á Hlíðarenda
Félagsmenn nýta golfskálann mikið í tengslum við blómlegt mótahald og samkomur tengdar golfinu. Auk þess veitir skálinn börnum og unglingum afdrep þegar þau sækja skipulagða æfingar hjá GSS en algengt er að börn komi með nesti að heiman fyrir matar- og kaffitíma. Yfir sumartímann er starfsmaður alla daga í skálanum sem gefur gestum upplýsingar um völlinn og Skagafjörð og selur vallargjöld og léttar veitingar. Golfklúbburinn nýtir skálann mest yfir sumarmánuðina, en hann stendur að mestu ónotaður yfir vetrarmánuðina. Sum sveitarfélög hafa farið þá leið að byggja fjölnota skála sem nýtist fyrir ýmsa starfsemi allt árið, m.a. klúbba sem ekki hafa eigin aðstöðu.
Inniæfingar á veturnar
Í inniaðstöðu í Borgarflöt 2 er golfhermir, púttvöllur og aðstaða til að slá í net. Þar eru inniæfingar fyrir börn og unglina á veturnar. Aðrir félagsmenn nýta inniaðstöðuna einnig til æfinga og mótahalds á veturnar. Í norðurhluta hússins er tækjageymsla og aðstaða til viðhalds á tækjum. Goflhermirinn er nokkuð gamaldags og kominn tími á endurnýjun til að börn og unglingar fái sem besta kennslu.
50 ára afmæli
GSS heldur upp á 50 ára afmælið með ýmsum hætti. Afmælisrit verður gefið út og dreift til allra heimila og fyrirtækja í Skagafirði. Þar verða greinar og viðtöl og birtur hluti af sögu klúbbsins, en saga GSS er hluti af sögu Skagafjarðar. Fleiri viðburðir verða á árinu svo sem afmælismót og afmælishóf. Nokkrir klúbbfélagar hafa tekið sig saman og stefna á golfferð til Póllands í haust. Átak verður gert í því að ná til nýbúa og stofnuð verður púttdeild sem hentar vel fyrir 70+ aldurinn.
Fyrirtækjum og stofnunum stendur til boða að vera með starfsmannaviðburði á Hlíðarendasvæðinu í samstarfi við golfklúbbinn í sumar. Þar kemur ýmislegt til greina, t.d. vanur/óvanur mót, síðdegisgolfnámskeið, þrautabraut og fleira.
Framtíðin
Framtíðin er björt. Golf nýtur mikilla vinsælda á Íslandi með næstflesta iðkendur samkvæmt tölum frá ÍSÍ. Golfið hefur sannað gildi sitt sem heilsubót og fjölskylduíþrótt sem hentar fólki á öllum aldri. Einnig eru mikil tækifæri í golfferðamennsku fyrir GSS og Skagafjörð.
Kristján Bjarni Halldórsson, formaður GSS
Inniæfingar barna og unglinga
Golfklúbbur Skagafjarðar á 50 ára afmæli í ár og í tilefni þess munum við leggja okkur fram við að hafa starfið sérstaklega viðburðaríkt og skemmtilegt 🌟
Við hefjum starfsárið þriðjudaginn 14. janúar með inniæfingum á Flötinni.
Æfingarnar verða sem hér segir:
1-2. bekkur, þriðjudagar kl. 16:30 – 17:20
3-4. bekkur, þriðjudagar kl. 17:30 – 18:30
5. bekkur og eldri, miðvikudagar kl. 18:00 – 19:30
Telma Ösp Einarsdóttir mun sjá um æfingarnar og mun Arnar Freyr Guðmundsson aðstoða hana með báða yngri hópana.
Skráning mun fara fram á Nóra og munum við tilkynna þegar opnað hefur verið fyrir skráningu.
Við erum orðin ofurspennt fyrir nýju golfári og vonumst til að sjá krakkana sem flest í næstu viku.
Unglinganefndin