Ólafshússmótaröðin 2016
Tíunda og síðasta Ólafshússmótið fór fram miðvikudaginn 24. ágúst. Andvirði mótsgjalda og frjáls framlög félagsmanna í GSS fóru ferðasjóð Ívars Elí Sigurjónssonar og fjölskyldu.
Helstu úrslit mótaraðarinnar:
Telma Ösp Einarsdóttir var með flesta punkta með forgjöf og Arnar Geir Hjartarson var með flesta punkta án forgjafar. Ásmundur Baldvinsson vann BESTA HOLA, á 53 höggum nettó.
Á lokamótinu var Ásmundur Baldvinson með flesta punkta án forgjafar og Hjalti Árnason var með flesta punkta með forgjöf.
Eigendur Ólafshúss fá þakkir fyrir stuðninginn.