Lokamót Ólafshússmótaraðarinnar til styrktar Ljósinu til minngar um Ingvar Gunnar Guðnason.
Lokamót Ólafshússmótaraðarinnar verður tileinkað fyrrum félaga okkar Ingvari Gunnari Guðnasyni sem féll frá í júlí sl. Andvirði þátttökugjalds og frjáls framlög félaga renna til Ljóssins í nafni Golfklúbbs Sauðárkróks. Áætluð mótslok eru um klukkan 21:30 en þá verða veitt verðlaun fyrir besta árangurinn á mótaröðinni og fyrir lægsta skor í leiknum um bestu holu. Þeir félagar sem ekki taka þátt í lokamótinu eru hvattir til að vera við verðlaunaafhendinguna og leggja málefninu lið með frjálsu framlagi.
Veitingar í mótslok og eru GSS félagar beðnir um að koma með brauðrétt, köku eða bara það sem hentar hverjum og einum.