Arnar Geir Hjartarson er holukeppnismeistari GSS 2014
Úrslitaleikinn háði Arnar Geir við Ingva Þór og hafði Arnar sigur á 18 holu. Mótanefnd þakkar keppendum fyrir þátttökuna í holukeppninni.
Úrslitaleikinn háði Arnar Geir við Ingva Þór og hafði Arnar sigur á 18 holu. Mótanefnd þakkar keppendum fyrir þátttökuna í holukeppninni.
Ræst út af öllum teigum klukkan 10:00 keppendur eru beðnir um að vera mættir í golfskála eigi síðar en 9:45. Leikfyrirkomulag er Texas scramble. Hámarksforgjöf karla er 24 og kvenna 28. Aðeins keppendur með virka forgjöf geta unnið til verðlauna. Leikforgjöf liðs er fundin með því að leggja saman leikforgjöf spilafélaga og deila með fimm.
Verðlaun fyrir fimm bestu skorin. Gjafabréf frá Golfbúðinni í Hafnarfirði.
Skráning á golf.is. Lið sem skrá sig saman verða saman í holli. Þeir sem ekki hafa leikfélaga er bent á að hafa samband við mótsstjóra.
Mótsstjóri Sigríður Elín Þórðardóttir sími 8946010.
Varaformaður GSS Halldór Halldórsson afhenti í gærkvöldi Hrefnu Þórarinsdóttur 100.000 króna styrk til Ljóssins í minningu Ingvars í lokamóti Ólafshússmótaraðarinnar.
Jafnframt fór fram verðlaunaafhending Ólafshússmótaraðarinnar. Bestan samanlagðan árangur í sjö mótum án forgjafar og með forgjöf náði Ingvi Þór Óskarsson og Ásgeir Björgvin Einarsson náði besta skori í besta holu leiknum. Magnús Gunnar Gunnarson var með flesta punkta með forgjöf í lokamótinu og Ingvar Þór var með flesta punkta án forgjafar. Nánari upplýsingar um heildarúrslit mótaraðarinnar er í golfskála og á GSS undir mótanefnd.
Golfklúbburinn þakkar Kristínu Magnúsdóttir og Sigurpáli Aðalsteinssyni styrktaraðilum Ólafshússmótaraðarinnar fyrir stuðninginn við mótaröðina.