Ólafshúsmótaröðin ,,Besta hola“
Leikfyrirkomulag ,,Bestu holu“ 2014 er höggleikur með forgjöf. Keppendur skrá höggafjölda án forgjafar og í lok sumars er keppnin gerð upp með leikforgjöf kylfings á Hlíðarenda eftir síðasta Ólafshúsmótið sem er 20. ágúst.
Keppendur verða að taka þátt í minnst sex mótum til að klára skorkortið því að hámarki er leyfilegt að skrá þrjár holur í móti.
GSS félagar eru hvattir til að taka þátt í þessum skemmtilega leik.
Ólafshús er styrktaraðili mótaraðarinnar.