Opna Vodafone minningamót um Friðrik J. Friðriksson
Opna Vodafone minningamót um Friðrik lækni, heiðurfélaga og einn af stofnendum GSS var haldið laugdaginn 16. júlí í blíðskaparveðri. Alls tóku 29 keppendur þátt í mótinu en leikfyrirkomulag var höggleikur með forgjöf.
Glæsileg verðlaun að verðmæti um 200.000 voru veitt fyrir sex efstu sætin í höggleik, að auki voru nándarverðlaun á 6/15 braut og fyrir að vera næst holu í öðru höggi á 9/18.
Helstu úrslit:
1. Kristján Bjarni Halldórsson GSS – nettó 67 högg
2. Friðjón Bjarnason GSS – nettó 68 högg
3. Arnar Geir Hjartarson GSS – nettó 70 högg
4. Arnar Oddsson GA – nettó 72 högg
5. Haraldur Friðriksson GSS – nettó 72 högg
6. Guðmundur Ragnarsson GSS – nettó 73 högg.
Herdís Sæmundsdóttir GSS var næst holu á 6/15 braut eða 0.58 cm og Haraldur Friðriksson komst næst holu á 9/18 eða 3 metra.
Frímanni og Auði eru færðar þakkir fyrir stuðninginn.