Vel heppnað styrktarmót
Mót til styrktar kvennaliði Tindastóls var haldið föstudaginn 28. maí. Liðsmenn Tindastóls voru paraðir saman við félaga í GSS og spilaður Texas Scramble. Mótið tókst mjög vel, mikil leikgleði og jákvæðni hjá öllum.
Mót til styrktar kvennaliði Tindastóls var haldið föstudaginn 28. maí. Liðsmenn Tindastóls voru paraðir saman við félaga í GSS og spilaður Texas Scramble. Mótið tókst mjög vel, mikil leikgleði og jákvæðni hjá öllum.
Á föstudaginn næsta, 28. maí mun GSS standa fyrir skemmtimóti í golfi til styrktar og stuðnings meistaraflokki kvenna í knattspyrnu sem nú spilar í fyrsta sinn í sögu Tindastóls í efstu deild.
Allir félagsmenn eru hvattir til að taka þátt og skrá sig á Golfbox. Spilað verður í pörum, vanur/óvanur, þ.e. einn frá GSS og ein úr Tindastóli í hverju liði. Við skráningu á Golfbox er hægt að panta leikmann til að spila með. Þátttökugjald er 2.500 kr. en auk þess verður tekið á móti frjálsum framlögum í klúbbhúsi á keppnisdag hvort sem er frá þátttakendum eða velunnurum mfl. kvenna.
Við skorum á fyrirtæki í Skagafirði að styðja við stelpurnar með því að kaupa holl og fær þá hollið nafn þess fyrirtækis. Styrktaraðilar eru beðnir að hafa samband við mótanefnd til að panta holl: Aldís (611-3499), Andri (848-4189), Hjalti (895-8619) eða Pétur (899-7716).
Ræst verður frá öllum holum kl. 18 og stefnt er á létt pylsupartý í lokin og góða samverustund.
Skálinn opnar 20. maí. Vörurnar eru farnar að streyma inn, m.a. golfboltar á góðu verði. Félagsmenn sem spila bókaðan hring laugardaginn 22. maí fá frían kaffibolla milli kl. 10 og 15.
Skráningarblað tiltektarmóts er í skálanum. Mögulega verður fyrirkomulagið Texas scramble með fjóra í liði sem verða valdir saman þannig að liðin verði sem jöfnust. Allt til gamans gert en samt góð verðlaun.
Fullt er orðið á nýliðanámskeið 31. maí og örfá laus pláss eru á upprifjunarnámskeið 24. maí. Dagbjört Rós skráir.
Andri ritari GSS hefur haft nóg að gera við að skrá nýja félaga í Golfbox. Nú stefnir í að fjöldametið verði slegið, þriðja árið í röð.
Nýtt skorkort mun líta dagsins ljós innan skamms. Vallarmatið hefur breyst lítillega sem og styrkleikaröð brauta. Við hvetjum samt félaga til að nota frekar Golfbox skorkortið þegar þeir spila hversdagshring á vellinum.
Við ætlum að henda gömlu borðunum í skálanum en fjölga hringlaga borðum. Það verður vonandi meira kósý.
Stefnt er á sjálfboðaliðamót í haust þar sem sjálfboðaliðar sumarsins geta tekið þátt. Til að öðlast þátttökurétt þarf félagsmaður að vinna sjálfboðaliðavinnu í júní-ágúst, t.d. taka sjoppuvakt, vera mentor, vinna á velli, vinna í nefnd eða stjórn o.s.frv.