Persónuverndarstefna GSS:
Starfsáætlun 2021:
Helstu atriði starfsáætlunar 2021:
Mótanefnd:
– Meistaramót GSS 7. – 10. júlí
– Meistaramót GSS í holukeppni, hefst 20. Júní.
– Miðvikudagsmótaröð – Grána Bistró (10 mót)
– Opin mót:
KS (5. júní),
Lemon / Friðriksmót (20. júní),
Hlíðarkaupsmótið (17. júlí),
AVIS (24. júlí),
Advania (21. ágúst).
– 2 styrktarmót, eitt að vori og annað að hausti
Þar að auki eru mót sem eru ekki í umsjón mótanefndar:
Tiltektarmót 31. maí
Sólstöðumót um miðjan júní.
Kvennamót 3. júlí
Örlygsstaðabardagi (lokamót, í september).
Vallarnefnd:
- Minni viðhalds og endurbótaverkefni sem falla undir eðliegan rekstur vallarins og eru hluti af daglegum verkefnum vallarstjóra/vallarnefndar.
- Grisja trjágróður á bak við 3. flöt með það fyrir augum að auðveldara sé að taka lausn.
- Fylla upp í austastu glompuna á 7. braut.
- Gera (lagfæra) göngustíg frá 9. teig niður að braut.
- Setja upp skjólvegg eða runna milli æfingaflatar og bílastæða.
- Laga tjörn á 5. braut. Taka upp plast og gosbrunn. Hreinsa upp úr tjörninni og kaupa nýjan dúk í botninn. Ganga vel frá köntum, m.a. með því að raða fjörugrjóti ofan á jaðar dúksins.
- Kanna möguleika á stækkun vallar í 12 holur. Gera áætlun um framkvæmdir, þ.m.t. framkvæmdatíma, kostnað og fjármögnun. Kynna tillögu á fundi með félagsmönnum.
- Setja upp varanlegri teigmerkingar sem eru viðmiðunarpunktur mældrar lengdar. Þetta þarf að gera fyrir hvíta, gula, bláa og rauða. Sumir teigar eru sameiginlegir.
Barna- og unglinganefnd:
- Vikulegar inniæfingar eldri hóps 18. febrúar – 15. apríl. Mánaðarlegar inniæfingar yngri hóps á sama tímabili.
- Vikulegar æfingar á útisvæði í maí.
- Sumaræfingar júní – ágúst.
- Meistaramót barna og unglinga.
- Gert er ráð fyrir nokkrum heimsóknum PGA gestakennara í sumar.
- Mótahald: Nýprent mótið.
- Þátttaka í mótum, m.a. Íslandsmóti golfklúbba. Norðurlandsmótaröðin.
- Félagsandinn efldur. Speedgolf, haustferð, o.fl.
- Uppskeruhátíð.
Kynningar- og nýliðanefnd:
- Nýliðanámskeið, 5 vikna námskeið sem hefst í byrjun júní.
- Þriðjudagsmótaröð, háforgjafarmót. 10 mót. Fyrsta mót í byrjun júní.
- Gullteigamót fyrir þátttakendur á nýliðanámskeiði.
- Vanur/óvanur mót. Halið við lok nýliðanámskeiðs.
Uppfært í júní 2021 – KBH