Nú fer að styttast í opnun golfvallarins inn á sumarflatir. Opnunarmóti GSS sem fyrirhugað var 1. júní hefur verið aflýst og verður fyrsta mótið því miðvikudagsmót 5. júní.
Hlýindin og vætan hafa gert góða hluti undanfarið og vallarstarfsmenn eru á fullu við að lagfæra skemmdir sem eru í mörgum flötum. Leyniblanda vallarstjóra og Reynis Barðdal hefur verið sett á flatrinar og nú stendur yfir sáning og söndun.
Athygli er vakin á því að völlurinn er opinn fyrir félagsmenn, en ekki er spilað af teigum og inn á flatir í augnablikinu. Kylfingar eru beðnir um að passa sérstaklega vel upp á völlinn, færa úr bleytu og lagfæra kylfuför. Þá eru kylfingar beðnir að fara ekki með þungar golfkerrur inn á völlinn og taka tillit til starfsmanna.
Mark Irving mun verða aðalþjálfari GSS sumarið 2013. Mark er Breti en búinn að vera búsettur í Danmörku og víða á Norðurlöndunum undanfarin ár. Hann er fæddur 1955 og hefur gríðarmikla reynslu við golfkennslu undanfarna áratugi. Hann útskrifaðist frá PGA of England, sem “fully qualified PGA professional” 1974. og hefur síðan sótt fjölda námskeiða frá þeim tíma. Hann starfaði síðast 2010 – 2012 sem Head Professional at Dragsholm Golf Club, Sjælland,Denmark.
Mark kemur til okkar um mánaðarmótin maí/júní og verður hjá okkur við kennslu til ágústloka. Hann mun hafa umsjón með barna-og unglingastarfinu okkar ásamt því að sinna almennri golfkennslu fullorðinna. Mark hefur bestu meðmæli og gríðarlega reynslu við kennslu, bæði barna/unglinga sem og fullorðinna. Við bindum við miklar vonir við áframhaldandi framfarir og eflingu golfiðkunar í Skagafirði.
Golfskólinn hefst formlega miðvikudaginn 5.júní n.k. og verður með svipuðu sniði og undanfarin ár.
Golfskólinn er frá kl:10:00 – 15:00 frá mánudegi til fimmtudags;
7-11 ára eru frá kl.10:00 – 12:00,
Eldri iðkendur eru til kl. 15:00.
Á föstudögum er golfskólinn frá kl.10:00 – 12:00
Gjald er kr. 15.000,- fyrir 7-11 ára, kr. 20.000,- fyrir 12 ára og eldri
Félagsgjald í klúbbnum er innifalið í æfingagjaldinu
Skráning er hafin í golfskólann. Hægt er að senda tölvupóst á hjortur@fjolnet.is eða hringa í síma 8217041.
Nafn iðkanda ásamt kennitölu þarf að fylgja ásamt nafni á tengiliði, netfangi og símanúmeri.
Einnig þarf að fylla út meðfylgjandi upplýsingaeyðublað
Stjórn GSS vill minna félaga að greiða félagsgjöld eða gera ráðstafanir sem fyrst. Hægt er að hafa samband við gjaldkera með því að senda netpóst á rama@arskoli.is. Þegar búið er að ganga frá greiðslu fær félagi sent skírteini og getur þar með nýtt þau hlunnindi sem samið hefur verið um fyrir félaga. Einnig viljum við hvetja félaga og aðra sem vilja fréttir frá GSS að senda netfang til formadur@gss.is