Miðvikudagmótaröðin
Kæru félagsmenn og aðrir aðdáendur Hlíðarendavallar
Miðvikudagsmótaröðin verður á sínum stað í sumar en hefur tekið smávægilegum breytingum, til hins betra að mati mótanefndar. Fyrst ber að nefna að samið hefur verið við nýjan styrktaraðila og mun mótaröðin bera titilinn Grána-Bistro mótaröðin a.m.k. næstu tvö sumur. Við þökkum kærlega fyrir stuðninginn og hlökkum til samstarfsins með þeim.
Okkur í mótanefnd langar að fjölga þátttakendum í mótaröðinni og höfum við því breytt reglum örlítið og aukið andvirði verðlauna. Við viljum einnig reyna að fá fleiri konur til að taka þátt og því verður nú keppt í bæði kvenna- og karlaflokki.
Nýjar reglur eru aðgengilega á heimasíðu golfklúbbsins en hér eru helstu atriði:
- 10 stök mót á miðvikudögum
- Þátttökugjald er 2.000 kr. pr. mót fyrir félagsmenn GSS (10 skipta kort verða seld)
- Keppt í karla- og kvennaflokki, punktakeppni með forgjöf á hverju móti og einnig samanlagt í lok raðarinnar.
- Í lok mótaraðar verður Gránu-Bistro meistari verðlaunaður, besti samanlagði árangur mótaraðar, punktakeppni án forgjafar, óháð kyni.
- „Besta holan“ verður á sínum stað
Við hlökkum til að sjá ykkur fjölmenna á miðvikudagsmótin í sumar,
kveðja,
mótanefndin