Nýliðanámskeið GSS
Golfklúbburinn kynnir nýliðanámskeið fyrir fullorðna byrjendur í golfi.
Námskeiðið er innifalið í félags- og nýliðagjaldi í klúbbnum. Það tekur á öllum þáttum golfsins s.s. spili á velli, púttum, vippum, fullum höggum, siða- og golfreglum, auk kynningar á inniaðstöðu.
Námskeiðið endar með golfmóti og lokahófi.
Æfingar verða kl. 17:30 – 18:30 mánudaga og fimmtudaga, hefjast fimmtudaginn 2. júní og standa í 6 vikur eða 12 æfingar.
Komið og njótið félagsskaparins.
Skráning á gss@gss.is. Nánari upplýsingar um námskeiðið gefur Jón Þorsteinn PGA golfkennari í síma: 618-1700.