Golfkennsla
Ágætu kylfingar,
Óli Barðdal PGA kennari verður á Króknum um jólin og býður upp á golfkennlsu frá 13. desember til 2.janúar í inniaðstöðu Golfklúbbsins við Borgarflöt.
Óli hefur tekið með sé Flightscope og videogreiningartæki.
FlightScope er nýjasti „launch monitorinn“ og jafnframt sá fullkomnasti í dag. FlightSchope notar radar til að mæla nákvæmar upplýsingar um kylfuhausinn, sveifluna og boltaflugið. FlightScope Elite mælir alls 24 mismunandi atriði. FlightScope var fyrsta tækið á markaðnum með upplýsingar um boltaflug og boltaspuna með radar. FlightSchope er notað af fyrirtækjum eins og Ping, TaylorMade, Cobra, Callaway, Nike, Wilson o.fl. og hefur verið notað í fjölda stórmóta og í „long drive“ keppnum. Fyrst var FlightScope notað í sjónvarpi árið 2004 í Battle of the Bridges mótinu. Þar vakti tækið mikla athygli þar sem fram komu upplýsingar um höggin hjá m.a. Tiger Woods og John Daly.
Verð;
30 min. 3500 kr.
60 min. 5000 kr.
Óli Barðdal tekur við tímapöntunum í síma 845 3401.