Golfklúbbur Sauðárkróks sendir lið í sveitakeppni pilta 18 ára og yngri sem haldin verður á Hellu 23-25 ágúst n.k.
Liðið sem hefur verið valið skipa þeir:
Arnar Geir Hjartarson
Atli Freyr Rafnsson
Elvar Ingi Hjartarson
Hlynur Freyr Einarsson
Jónas Már Kristjánsson
Pálmi Þórsson
Á föstudaginn verður leikinn 18 holu höggleikur sem ræður niðurröðun í riðla. Eftir það verður spiluð holukeppni – tvöföld umferð bæði laugardag og sunnudag.
Hægt verður að fylgjast með framvindu keppninngar á www.golf.is alla keppnisdagana.
Sveitakeppni GSÍ er nú lokið. Karlasveit GSS keppti í fjórðu deild, sem fram fór á Sauðárkróki. Eftir harða baráttu sigraði sveit Dalvíkinga, Selfyssingar urðu í öðru sæti en sveit Sauðárkróks í því þriðja. Dalvíkingar og sveit Golfklúbbs Selfoss keppa því í þriðju deild að ári en Sauðkrækingar verða áfram í fjórðu deild. Viðureign GSS og Selfoss féll ekki með okkar mönnum en okkar menn stóðu sig með mikilli prýði og luku gestir lofsorði á Hlíðarendavöll og framkvæmd mótsins. Úrslit urðu annars þessi.
1. Golfklúbbur Dalvíkur
2. Golfklúbbur Selfoss
3. Golfklúbbur Sauðárkróks
4. Golfklúbbur Bakkakots
5. Golfklúbburinn Geysir
6. Golfklúbbur Þorlákshafnar
7. Golfklúbburinn Þverá (fellur í 5. deild)
8. Golfklúbburinn Sandgerði (fellur í 5. deild)
Kvennasveitin keppti í efstu deild og atti þar kappi við bestu kvenkylfinga landsins. Þrátt fyrir sigur í síðustu umferð gegn Golfklúbbinum Oddi endaði sveitin í 7. sæti og féll í aðra deild. Stelpurnar stóðu sig með prýði og þurfa ekki að bæta sig mikið til að halda sér meðalþeirra bestu.
Til gamans má geta að fjöldi mynda frá sveitakeppninni á Hlíðarendavelli er að finna á facebook hóp sem heitir „Golfmyndir GSS“ – hvetjum alla til að skoða þær.